María's profileErlan perlanPhotosBlogLists Tools Help

Blog


    November 28

    Hugrenning á vinnutíma:)

     jaja svona er nú það.
    Tíminn líður bara og ég skrifa eigi inn á bloggsíðuna eitt einasta orð. Nú er nóvember og jólin alveg að koma. Tíminn bara flýgur frá mér og áður en ég veit af verð ég orðin 3 barna móðir í gravarvoginum. Sátt við tímann sem ég hef eitt á þessarri jörðu og óska einskins heitar en að búa til eitthvað áhugavert í nesti með börnunum mínum í skólann. Hver veit hvað morgundagurinn ber í skauti sér. Ég er alveg hætt að plana meira en mánuð til tvo fyrifram. Annað er bara vitleysa og tímaeyðsla. Allt breytist aðlagast og fer í mismundandi stefnur eftir litlu skrefi sem þú hefur ákveðið að taka í staðinn fyrir eitthvað annað. Ef ég hefði aldrei farið á Kárahnjúka hefði ég ekki kynnst honum Carl mínum og fengið þá reynslu sem ég er aðnjótandi hérna uppfrá. Kynnst því hversu mikið ég met frítímann minn og þá vini sem ég hef kynnst í gegnum tíðina. Vinir sem á sin einstaka og sérhvern hátt eru þeirrar blessunar aðnjótandi að hafa haft einhver áhrif á mig frá því ég kynntist þeim. Já já allt um mig en auðvitað hugsa allir þannig. Þeir segjast ekki vera eigingjarnir en við verðum að hugsa fyrst og fremst um okkur. Hvað skapar okkur, mótar okkur, hver og hvað gerir okkur hamingjusama. Allt sem við sjáum og upplifum í þessum heimi sem sem gerir líf okkar aðeins betra, fallegra, meira spennandi og frískandi. Allar þær myndir sem við geymum í huga okkar og gera okkur að þeirri persónu sem við erum og enginn.. já enginn veit í raun hver við raunverulega erum nema við sjálf.