| María's profileErlan perlanPhotosBlogLists | Help |
|
March 15 Hver dagur er vitrum manni nýtt líf.Ég var að lesa um daginn í bók sem heitir lífshamingja njóttu. Þetta er bók sem Logalingur átti og man ekki alveg hvort hann gaf mér hana eða bara lánaði. En það er annað mál. Hún hjálpaði honum víst mikið og núna er ég loks að skilja af hverju. Hún hjálpar manni að slappa örlítið af. Ekki taka lífinu of alvarlega en nota hvern dag eins vel og maður getur. Maður er allt of upptekinn í því að klára vinnuna eins og stendur. Verð líklegast búin hérna í apríl (lok) ef allt gengur að óskum. Þá langar mig til að fá mér einhverja sumarvinnu. Er buin að skrá mig á jarðfræða ráðstefnuna í Svínafelli á mai sem kallast Artic workshop 2007. Hún verður haldin í Svínafelli og verður meginhluti ráðstefnunnar um eitthvað tengt jöklum og vinnu í kringum þá. Persónulega hef ég nú meiri áhuga á afurðum eldfjalla en allt tengist þetta á einhvern hátt svo það er um að gera að komast örlítið inn í fyrirlestrahald svona þegar maður er búin að vera einangraður í 2 ár uppá fjöllum. Jú það er svo sem enn fínt hérna uppfrá en manni líður eins og hluti af manni sé orðinn félagslega þroskaheftur. Maður kann ekki alveg á fólk lengur og hinar hversdagslegu athafnir eins og kaffihús og bíó og venjulegt spjall. Kannski hef ég aldrei verið neitt afburðar góð í því heldur. Get valla kennt Kárahnjúkum um það. Ég sótti um daginn um námskeið sem verður haldið í Kamchatca í Rússlandi í sumar. Þetta er eldfjallafræðikúrs þar sem nemendum er þrælað út í tvær vikur með 20 kg bakpoka. Getur verið að við löbbum í um 20 km á dag. Ég er nú ekki í það góðu formi svo ef ég kemst inn verður maður að koma sér í form á "no time". En þetta námskeið er ótrúlega spennandi. Verðum með fyrirlestra, könnum afurðir og sögu eldfjallakeðju í "the ring of fire" og svo er auðvitað notið náttúrunnar í óbyggðunum. Ég vona að ég komist en það eru einungis takmarkaður fjöldi sem kemst og ég er nú ekki með neinar A-einkunnir. Kannski nokkrar en aðallega B-manneskja:)
Jaja. Það sem mig langaði að segja er það að ef maður tekur hverjum degi eins vel eins og maður getur. Hefur samband við vini sína, gerir eitthvað eftirminnilegt ,og þá er ég nú ekki að meina alltaf, þá verður hver gærdagur sem falleg minning og framtíðin vonarbjarmi. Allt of væmið:)hehheheh en ég segi það satt. Notaðu daginn vel og ekki velta þér uppúr liðnum hlut. Því ef þú ert alltaf að velta þér uppúr gærdeginum missirðu af deginum í dag og það er ekki vel nýttur dagur. Brostu framan í heiminn og njóttu þessa að vera á lífi og geta notið þess fallega í heiminum. |
|
|