María's profileErlan perlanPhotosBlogLists Tools Help

Blog


    April 14

    Kárahnjukar að verða búnir

    Jaja. Ég er nú ekki búin að segja mörgum frá þessarri síðu minni en langar nú bara að byrja smá sjálf. Það er fínt að hafa eitthvað svona svæði fyrir sig. Ég væri nú samt tilbúin að geta sett símaskrá inná þetta líka svo ég gæti haft alla þá sem ég þekki hérna inni. Maður veit svo sem ekki hvar maður endar í þessarri veröld og hvort kerfið sem maður er að nota núna helst í gangi (og að maður muni leyninúmerið sitt, hehe). Ég er skráð inná Plaxto en er einhvernveginn aldrei með tíma til að uppfæra það á góðann hátt. En nú mun ég nú hafa tíma til þess. Kárahnjúkar eru að fara að klárast og ég er ekki búin að finna mér aðra vinnu þar sem í allan þennan tíma hef ég ekki vitað nákvæmlega hvenær ég muni hætta hérna. Það hefur alltaf verið mánuður meira. Sem á endanum hefur orðið ár og nú er ég að verða búin að vera hérna í 2 ár þann 20.apríl. Það er eiginlega komið nóg. Nú langar mig til að gera eitthvað öðruvísi en þetta hérna. Væri alveg til í að vinna við þetta aftur en bara ekki Kárahnjúka.. enda verður það ekki hægt. Reynslan er búin að vera góð og ég segi ekki að ég sjái eftir þessu en frítíminn fer út um gluggann. Að eiga ekki frítíma að neinu ráði í 2 ár setur sitt mark á mann. Mig langar ótrúlega mikið að fara í sund og gera eitthvað með vinum mínum, ef ég á þá einhverja eftir þetta ævintýri:). Jaja farin að vinna svo ég komist nú einhverntímann niður af þessu fjalli. Ástarkveðjur Erla perla