María's profileErlan perlanPhotosBlogLists Tools Help

Blog


    May 22

    Kamchatca í Rússlandi

    já ég er nú enginn fyrirmyndarbloggari en ákvað nú samt að skrifa svona einstaka sinnum.
    Ég sótti um "Volcanic field school" við Fairbanks háskólann í Alaska. Mig hefur dreymt um að komast til Kamchatca svæðisins frá því að ég var að vinna á Litla ljóta andarunganum þegar ég var um 21 árs. Núna 10 árum síðar lítur út fyrir að ég sé að fara.
    Það voru nú einungis 10 manns sem sóttu um/komust inn að þessu sinni. Ég þurfti að fylla út 6 blaðsíðna umsókn um fyrri störf og reynslu auk þess að senda meðmælendabréf frá prófessor skólans sem ég hafi verið í. Sendi fyrrverandi leiðbeinanda mínum, Ármanni Höskulssyni, fyrir Bs-verkefnið fyrirspurn um hvort hann væri til í að skrifa mér meðmælendabréf og hann tjáði mér að hann myndi senda hans bestu meðmæli. Hvað það nú merkt var ég nú ekki alveg viss um þar sem ég fékk nú enga 10 fyrir verkefnið:) en svo kom fyrir að ég komst inn í þennan hóp og er að fara núna 14.Júlí til Rússlands.
    Leiðbeinandinn í ferðinni er John Eichelberger og Rússi að nafninu Pavel Izbekov. Við förum á viku námskeið í Petrovavlovsk háskólanum á Kamchatca. Námskeiðið heitir "Russian Bridge" og er einhverskonar skyndikynning á öllu því sem viðkemur Rússlandi. Saga, hagkerfi, tungumál, landafræði og jarðfræði. Verður alveg einstaklega fróðlegt. Verðum við þátttakendur þar að segja í fjölda kúrsa. Tel ég að þessi kúrs hafi verið gerður fyrir okkur og taka háskólastúdentar þátt í því að kynna land sitt og þjóð.
    Þegar þessi viku sögustund er lokið förum við í hálfsmánaðar göngu um syðri hluta Kamchatca skagans og er ómögulegt er að snúa við nema þá ef um alvarleg slys ber á góma.
    Við kynnumst helst svæðinu í kringum eldfjöllin Gorely og Mutnovsky. þar munum við kanna "recently active vents of the volcanoes as well as fumaroles, lava flows, pyroclastic flows, and a geothermal field".
    Ég verð nú að fara að lesa mig til um þetta en það eina sem ég er 100% viss á  er að á þessum skaga eru 29 eldfjöll og svæðið er staðstett á einu helsta eldfjallasvæði heims eða "the ring of fire". Já hjartað mitt hamast af gleði og ég á eiginlega mjög erfitt með að vinna þessa stundina. Vildi óska þess að ég væri komin aftur í skóla og gæti sökkt mér í lestur í staðin fyrir þessa 12 tíma vinnugeðveiki uppá fjöllum. Líf manns er á svo mikilli stöðnum hérna uppfrá að ég er alveg búin að fá nóg. En nú hef ég allavega eitthvað til að hlakka til fyrir utan að hætta hérna. Ekki misskilja mig. Þessi tími hérna er búinn að vera ótrúlega lærdómsríkur en ég væri alveg til í að prufa eitthvað annað núna. Þetta er líka allt að ljúka og ég er núna eina í grautunagenginu mínu sem er eftir. Finnst stundum eins og ég verði sú sem slekk ljósin hérna uppfrá.. hehe.. nei það verður örugglega Beta greyið:)
    Jaja skrifa eftir svona mánuð næst... það er þemað mitt eins og er.
    Ciao

    Comments (1)

    Please wait...
    Sorry, the comment you entered is too long. Please shorten it.
    You didn't enter anything. Please try again.
    Sorry, we can't add your comment right now. Please try again later.
    To add a comment, you need permission from your parent. Ask for permission
    Your parent has turned off comments.
    Sorry, we can't delete your comment right now. Please try again later.
    You've exceeded the maximum number of comments that can be left in one day. Please try again in 24 hours.
    Your account has had the ability to leave comments disabled because our systems indicate that you may be spamming other users. If you believe that your account has been disabled in error please contact Windows Live support.
    Complete the security check below to finish leaving your comment.
    The characters you type in the security check must match the characters in the picture or audio.

    To add a comment, sign in with your Windows Live ID (if you use Hotmail, Messenger, or Xbox LIVE, you have a Windows Live ID). Sign in


    Don't have a Windows Live ID? Sign up

    No namewrote:
    Frábært hjá þér. Vissi alltaf að þú færir langt.........he he
    Verst að idolið þitt er ekki með í för :)

    Ívar
    May 30

    Trackbacks

    The trackback URL for this entry is:
    http://erlanperlan.spaces.live.com/blog/cns!E4939D5DAA0BCC2B!299.trak
    Weblogs that reference this entry
    • None